Guð er að vitja Íslands - God is visiting Iceland
Vakna þú Ísland, Vakna þú íslenska þjóð
19.12.2008 21:12
Flóð og dyr
Það kom öldur en meira en öldur það kom flóð, flóðið varð svo mikið að allt fór á bólakaf og varnargarðurinn dugði engan veginn heldur þurfti örk til að bjargast, eins og var á dögum Nóa þannig mun verða við komu mannsonarins. Ég sá í sýninni að þetta var viðvörun frá Guði, að lítill undirbúningur er ekki nægur til þess að vera tilbúinn þegar Drottinn kemur aftur, lítill undirbúningur er kannski nægur til að taka við og verjast fyrstu öldunni eða öldunum sem koma af dómi Guðs þegar hann byrjar að skekja allt eins og með fjárhagshrunið en ekki nóg til að verjast þeim dómi sem koma mun yfir alla heimsbyggðina.
Daginn eftir vaknaði ég og þá sá ég aðra sýn og var það beint framhald af hinni fyrri, ég sá margar dyr lokast. Þessar dyr voru mjög áberandi og með hurðarhúnum, þegar dyrnar lokuðust flykktist fólk að dyrunum og reyndi að opna þær en það var ekki lengur hægt. Dyrnar voru 6 samtals, talan sex er tala manns og það var Guð sem lokaði þeim, þetta var dómur Guðs sem kominn var yfir verk mannanna, það sem Guð var búin að umbera í langlyndi sínu gerði hann ekki lengur, það var kominn dómur yfir verk mannanna. Ég sá sama manninn og í fyrri sýninni þreifa fyrir sér við hliðina á hinum dyrunum og hann var greinilega að þreifa fyrir sér þar sem flestir aðrir héldu að væri bara veggur, hann var að þreifa fyrir sér að leita að samskeytum á útlínum hurðarinnar, á þessari hurð var engin hurðarhúnn og hún var ósýnileg náttúrulegum augum, hann þurfti að leita að henni með því að leita Guðs í bæn og í lofgjörð, með því að leita og þreifa fyrir sér á þennan hátt þá fann hann loks dyrnar og komst inn, þegar inn var komið var mikið myrkur og þurfti hann að halda stöðugt áfram í bæn og í lofgjörð til að komast áfram og fá þau svör sem hann þurfti frá Guði, með því að leita á þennan hátt gaf Guð þau svör sem hann þurfti.
þetta var 7 hurðin, talan sjö er tala fullkomnunar og tala Guðs og sá ég í sýninni að þetta var hurðin á örkinni sem ég sá í fyrri sýninni og takið eftir ég sá þessa sýn á sunnudagsmorgni 7 dag vikunnar en hina sýnina rétt fyrir miðnætti 6 dagsins.
þetta heimfærist einnig inn á það sem ég á eftir að skrifa nánar um meira síðar ef Guð lofar. Guð talaði til mín árið 2007, að það væru 60 ár liðin frá stofnun Ísraels ríkis þann 14 maí 2008 og heimfærast þessi 60 ár einnig upp á þessar 6 dyr í sýninni sem lokuðust og næstu 10 ár ef Guð dvelur gera töluna 70 eða 7 dyrnar í sýninni.
Árið 2008 er tímamóta ár, ár nýrrar byrjunar og ár undirbúningsins. Það voru 8 sálir sem björguðust í örkinni hans Nóa, talan 8 er upprisutala Krist og tala nýs lífs. Guð dæmdi verk mannanna í Nóa flóðinu en hann Nói fann náð í augum Guðs með því að breyta rétt og hann varaði aðra við flóðinu, eins er það sama að gerast núna Guð er að skekja og dómur Guðs er byrjaður að koma yfir en þeir sem iðrast og leita Guðs í Jesú Kristi munu finna náð í hans augum, tvær metaskálar annars vegar dómur hins vegar náð allt eftir því hvað við veljum. Tek það þó skýrt fram að Guð mun ekki aftur eyða jörðinni í vatnsflóði eins og á dögum Nóa, næst verður það eldur, en þessi vötn eru andlegs eðlis en hugarfar mannanna er sama eðlis og á dögum Nóa, gera lítið úr verki Guðs og hæða það en Guð mun eiga fólk núna eins og hann átti þá.
þetta ár, árið 2008 er ár undirbúningsins að safna olíu á kerin eins og vísu meyjarnar gerðu þær áttu olíu á auka kerum en fávísu meyjarnar ekki og þá hvað við hróp brúðguminn kemur, brúðguminn kemur, Guð vill og er að koma með meiri einingu inn í líkama sinn og lækningu, það er einingin sem lætur olíuna renna sjá sálm 133 og Postulasöguna er þeir voru saman komnir einhuga og skírðust í heilögum anda. (Olían er Heilagur Andi)
Árið 2008 er tímamóta ár að Guð byrjar að hreinsa í burtu gamlar hefðir og dæma það sem er óhreynt í hans augum en þessi sömu vötn eru líka hreinsandi og full af endurnýjung og full af krafti Guðs þeim til handa sem eru í iðrun og í bæn og lofgjörð til Guðs.
Núna munu koma meiri skil á milli fávísu og vísu meyjanna og enn meiri skil á milli meyjanna 10 og þeirra sem ekkert vilja með Guð hafa. Þeir sem lifa án Guðs munu núna verða friðlausir í því sem þeir taka sér fyrir hendur og þeir munu ekki finna svör en þeir sem leita Guðs munu eiga kærleika, gleði og frið Guðs ríkulega og Guð mun gefa þeim svör inn í þeirra líf og annarra og bænheyra þá nú sem aldrei fyrr.
Ég mun skrifa meira fljótlega um það sem Guð hefur sýnt mér varðandi næsta ár...
08.12.2008 21:36
Draumur um hið gamla og nýja
Ég var úti hjá torf húsinu og var að fara spila golf, það var girðing í kringum anda pollinn og húsið og þar voru nokkrar ný bornar beljur í hólfinu og ég ætlaði að slá golf kúluna þar inni og út úr hólfinu þá tók ég eftir að ein beljan var að byrja að bera ég ætlaði að drífa mig að slá kúluna en þá tók ég eftir dauðum kálfi, allar lappirnar voru dottnar af við hné og hausinn var líka dottinn af búknum. Hinn kálfurinn var ný fæddur og allt virtist vera í lagi. það var annar kálfur að hnusa að beinunum hálf hræðslulegur, ég sparkaði beinunum frá og reyndi að reka hann frá. Ég tók eftir því að ný fæddi kálfurinn var við góða heilsu, ég hljóp á eftir honum, hann hljóp í hringi, ég reyndi að sparka í hann, ekki í reiði heldur til þess að gá hvort að hann var í lagi en ég hitti hann ekki, hann forðaði sér undan. Síðan stoppaði ég og bað fyrir honum. Ég bað að kálfurinn mætti lifa; Guð ég bið að þessi kálfur megi lifa, gefðu að þessi kálfur megi lifa en ekki deyja eins og hinn kálfurinn, ég stend í gegn þér djöfull og bind þig í Jesú nafni og ég leysi út sigur fyrir líf Jesús, ég batt allar árásir frá óvininum og leysti út sigur í Jesú nafni.
Útskýring á draumnum:
Girðingin þíðir Kristið umhverfi hérna á Íslandi, kálfurinn sem var að fæðast þíðir það nýja sem er að gerast í kirkjunni, það er það sem Guð er að gera núna á þessum dögum. Kálfurinn sem var dauður þíðir það gamla sem Guð gerði en það var ekki lengur á lífi. kálfurinn sem starði á þann dauða og þorði ekki að fara frá honum þetta er fólkið sem var á fullu í því sem Guð gerði einu sinni en þorir ekki að sleppa því sem Guð var að gera og fara af stað og taka þátt í því nýja sem Guð er að gera í dag. Margt af þessu er til mín en ég trúi því að sumt af þessum draum sé fyrir fólkið til þess að það sjái hvað Guð vill og viti að það sem er að gerast núna er frá Guði komið.
Einn sem vill ekki láta nafn síns getið.
07.12.2008 17:30
Innsiglis hringur Guðs
Ég sá gyllt innsigli stimplast yfir allt ísland, þegar innsiglið var tekið til baka eftir að hafa stimplað Ísland í heilu lagi þá sá ég að þetta var hringur á hendi Guðs, innsiglishringur konungsins.
Það var himinblár steinn í innsiglis hringnum og þegar glampaði á hann virtist hann vera rauður líka og ég fékk það til mín að þetta væri rúbín steinn og fékk einnig orðið Rúben sem þýðir sjá sonur.
Fékk það til mín að Guð væri að innsigla sinn sáttmála við Ísland og að hann vill hreint og ómengað orð til þjóðarinnar, enga málamiðlun og héðan frá Íslandi til annarra þjóða. Sá að þegar Drottinn tók höndina í burt frá Íslandi þá var eins og hún færi yfir Evrópu og yfir allan hnöttinn.
Orðið rúbín á hebresku þýðir hringlaga perla og snúa; horn á vegi eða vegg. Horn
Guð setur okkur í hornin fjögur, horn reynslunnar, þjáningarinnar svo við getum eignast meira af honum, perla verður til þegar sandkorn fer inn í skel skelfisksins og verður þar til á löngum tíma á meðan skelfiskurinn þjáist.
30.11.2008 01:09
3 sýnir; hestar, dyr og gæsir - 3 visions; horses, door and geese
1. Sá hjörð af hestum þeysa inn í Reykjavík. Þessir hestar voru her hestar með mikinn styrk, kraft, tilgang og réttlæti.
2. Sá lítinn hóp af fólki, kannski 4 eða 5 manneskjur sem voru að reysa við dyr sem voru á hliðinni og fólkið hélt við hurðina til að reysa hana upp í rétta stöðu, gæti þýtt það að hræring Heilags Anda myndi koma í gegnum dyrnar, að dyrnar er áskorun og Heilagur Andi mun byrja að vinna í hinum brotnu og þeim sem hefur verið hafnað.
Ég geri mér grein fyrir að mörg spámannleg orð hafa verið töluð út í þessum dúr, en vil samt gefa mína hvatningu líka.
3. Sá flokk af hvítum gæsum fljúga í örva flugi, þrýhyrnings, ein fremst, 3 fyrir aftan, síðan 4 sem fylgdu á eftir. Gæti þýtt að smurningin kæmi á þennan hátt.
Kærleikskveðjur,
Margaret Gill frá Ástralíu, er núna á Íslandi
I was praying the other night with a small group of people in a home group and saw 3 things.
1. A stampede of horses coming into Reykjavik. Horses were war horses with strength, power, purpose. They were bringing justice too.
2. I saw a small group of people maybe 4 or 5 beginning to raise a door. It was on an angle and the people were holding the door to raise it in a vertical position.
It could mean that the move of the Spirit will come thru that door and that door is Kalligan and the Holy Spirit will begin with the broken and rejects of society first.
I understand that many prophetic words have already been spoken along similar lines so I give my encouraging word also.
3. A flock of white geese coming in a diamond formation, 1 at the front, 3 behind, then 4 following. It could mean the annointing is coming in like that.
Kind Regards,
Margaret from Australia
30.11.2008 00:41
Múrveggur og slaghamar
Sá sýn í kvöld á samkomunni, ég sá stóran múrsteinsvegg, vegg fyrirstöðu og hindrana í okkar lífi til að gera vilja Guðs, mjög hár og rammbyggður veggur. Neðst upp við vegginn lá stór slaghamar, þetta var slaghamar orðs Guðs sem beið eftir að verða notaður. Guð var búinn að sjá hverju og einu af okkur fyrir verkfæri til að brjóta niður vegginn í lífi okkar og allt sem þurfti að gera var bara að taka upp slaghamarinn/orðið og láta hann dynja á veggnum, aftur og aftur þangað til veggurinn myndi láta undan og hrynja.
Jeremía 23:29 Það að brjóta vegg með slaghamri virkar þannig að maður þarf að lemja mörg högg í langan tíma og ekkert gerist uns allt í einu að veggurinn lætur undan eins er það með orð Guðs, maður þarf að nota það aftur og aftur uns allt í einu verður breyting, jórtra orðið.
29.11.2008 03:21
Myndband með Jeff Garvin og hestur trúarinnar
Hann talaði spámannlega til okkar í krafti andans, sagði meðal annars að Guð væri að kalla sérstaklega unga fólkið í krafti andans sem myndi þora að fara út fyrir kirkjurnar með Jesú nafn, fékk leifi hjá honum til að setja smá myndbrot með honum á netið, hérna er slóðin; spádómur með Jeff
Það læknuðust nokkrir og frelsuðust í kvöld.
Þegar hann talaði í kvöld þá sá ég sýn, ég sá hest trúarinnar (hvítur hestur í Jobsbók) krafsa í jörðina og nasa bardagann og standa síðan í afturfæturna og prjóna, reiðubúinn að fara af stað.
27.11.2008 01:17
ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF ÞESSU!!!
ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF ÞESSU!!! JEFF GARVIN FRÁ LAKELAND OG NORSKA ROKKSHLJÓMSVEITIN: 7 DAYS & A MIRACLE Í KÆRLEIKANUM. www.myspace.com/7daysandamiracle
Hvar og hvenær
Dags: FÖSTUDAGUR, Nóvember 28, 2008
Tími: 8:00pm - 11:00pm
Staður: Kærleikurinn
Gata: Kærleikurinn-Faxafeni við hliðina á Hagkaup gengið inn aftan við Miklubraut
Borg: Reykjavík, Iceland
Þetta verður geggjað kvöld í Kærleikanum til að njóta sín í botn, fá lækningu, útrás og spjalla síðan þar til kjálkavöðvarnir biðjast vægðar!
Brjáluð lækningasamkoma með Jeff Garvin kl 20 í spámannlegu flæði og geggjuð kaffihúsastemning með live tónlist frá 23 með norsku hljómsveitinni 7 days & a miracle. Söngvarinn í þeirri hljómsveit vann m.a. norska Eurovisjón fyrir nokkrum árum.
FRÍTT INN. Hægt verður að kaupa heitt kakó, vöfflur og skúffuköku á ódýru verði frá 23.
25.11.2008 00:27
Kletturinn Ísland í eldhafi
Var að koma af magnaðri samkomu í Kærleikanum, þar sem Jeff Garvin var að þjóna, svakaleg nærvera Guðs og spádómur fyrir Ísland sunginn út í langan tíma, get ekki haft það hér eftir nákvæmlega, en vil þó nefna að Guð er að kalla Ísland út úr myrkrinu, hann er að kalla syni sína og dætur út úr myrkrinu, því myrkri sem djöfullinn hefði umlukið fólkið með, hann kallar á dópistana og vændiskonurnar og bara alla þá sem í myrkri eru, hann kallar þá með nafni, hann er að kalla á fólk til þjónustu við sig, til að prédika, til að spá, til að lækna sjúka, til að opna augu blindra og heyrnalausra og málausa, og reisa upp dauða og héðan færu margir út til þjóðanna í Jesú nafni. Fólk myndi vakna upp á nóttinni og fá drauma og sýnir er Guð kallaði og vekti fólk upp með eldi. Hann orðaði þetta svona Iceland sem niceland.
Það var margt meira sem hann söng og talaði út og þar á meðal um eld Guðs.
Þegar hann söng út spádómsorðin sá ég sýn; Ég sá svartan stein eða klett, þessi steinn eða klettur var frosið Ísland. Kletturinn var kolsvartur og kaldur, ég sá eld Guðs byrja að loga allt um kringum klettinn og undir honum líka þannig að þessi kaldi klettur byrjaði smá saman að hitna þar til hann fór að hitna í gegn ekki ólýkt kolamola sem varð smá saman rauðglóandi. Eftir því sem að kletturinn Ísland hitnaði meir og meir þá fór fólkið að taka meira og meira við sér ekki ólýkt því þegar maður stendur berfættur á logandi kolum að hitinn varð óþægilegur og fólkið varð að gera eitthvað í Jesú nafni, það varð bara að fara af stað í Jesú nafni.
Það hafa sést margar sýnir um eld Guðs fara um Ísland, ég hef séð þennan eld fara frá suðurströndinni í austurátt og allan hringinn í kringum landið og einnig sem eldstólpa sem snérist eins og hvirfilvindur. Það er eitthvað byrjað að gerast og fer vaxandi og ég finn í anda mínum að þetta er rétt að byrja.
Það magnaða við þetta er það að mig langaði til að byrja að syngja út sýnirnar sem ég hef séð, sagði Þóru frá sýninni og hún söng hana út í Heilögum Anda í fyrirbæninni, magnað
23.11.2008 02:25
Tímamót
Í upphafi árs kom það til mín að árið 2008 væri ár nýrrar byrjunar/fæðingar/upphafs, ár undirbúningsins, tímamóta ár, að á þessu ári myndu koma sterk þátta skil.
Ég er búin að fá þetta til mín í nokkrum útgáfum og get skrifað þetta á nokkra vegu til útlistunnar og geri það eflaust síðar er meiri tími gefst til en læt eftirfarandi nægja í bili.
Guð sýndi mér að á þessu ári myndi margt byrja að gerast í því andlega sem aldrei hefði gerst áður og því til staðfestingar þá myndi það einnig gerast í því náttúrulega.
Eitt atriði ætla ég að nefna núna og það er hrun bankana sem núna kallast gömlu og nýju bankarnir og það er líka verið að tala um gamla og nýja Ísland, tilviljun, nei ég sé hlutina aldrei sem tilviljun.
Þú hugsar kannski, það er auðvelt að koma með svona eftir á, ég vil benda þér á að ég veit hvað var búið að koma til mín áður en það gerðist og sumt fer ég mjög varlega með og geymi það þar til það lítur dagsins ljós til þess að ég geti þroskað þetta með mér með því að sjá það staðfestast og einnig af því Guð er að kenna mér inn á þetta, sumt hef ég talað í fárra manna hóp og það merkilega við þetta er það að sumt hefur maður fengið og heyrt það síðan koma einnig sem staðfestingu frá öðrum þannig að Guð kemur oft með það sem hann er að leggja áherslu á til margra.
Þetta með þetta gamla og nýja hefur með gamla og nýja vínið að gera sem talað er um í Biblíunni og núna á þessu tímamóta ári, skilur meira á milli þess gamla og þess nýja sem Guð er að gera.
Ég var á kotmóti um verslunarmanna helgina og þá kom Ester konan hans Varðar með spádóm um þetta gamla og nýja þessu til staðfestingar, að gamli og nýi tíminn væri að mætast og við þyrftum að opna okkur fyrir því að taka við því, ég ætla ekki að fara nánar út í það sem hún talaði heldur halda áfram með það sem ég er að fjalla um.
Guð lagði ákveðið orð á hjarta mitt á kotmótinu sem ég talaði út og var það í svipum dúr og orðið sem Ester kom með bara í annarri útfærslu og kem ég að því síðar.
Gamla vínið er að þorna upp, þar að segja þetta gamla flæði sem hefur verið í gangi hjá Guði er að verða búið og það nýja er að byrja að flæða, ekki er hægt að setja nýtt vín á gamla belgi og kemur það inn á það að þetta sé ár undirbúningsins eða nýrrar byrjunar að hafa til nýja belgi fyrir nýja vínið.
Þegar við skoðum frásöguna um meyjarnar 10 þá voru 5 fávísar og 5 vísar, það sem ég sé að er að gerast er það að það munu verða meiri skil á milli kristinna manna, þeirra sem undirbúa sig í samfélaginu við Guð og stöðugt taka við þessu nýja sem Guð er að gera hverju sinni og þeirra sem halda bara áfram að vera í því gamla þó að Guð sé byrjaður að gera nýtt. Það verða einnig enn mun meiri skil á milli þeirra sem vilja ekkert með vilja Guð að gera og hinna sem velja Guð.
Guð í kærleika sínum skekur allt sem hægt er að skekja núna til að vekja fólk upp sem hafa orðið hálfvolgir (Laódíutímabilið) í andanum og sofnað, þetta tímabil er einnig nefnt sem örðugar tíðir í Biblíunni.
Það kæmi mér ekki á óvart að þetta með fjárhagshrunið núna væri bara fyrsta hrinan af þremur, einhverjir munu vakna upp og endurskoða líf sitt frammi fyrir Guði á ný og einhverjir munu frelsast.
Ég trúi því að Guð sé að vara okkur við og muni gefa okkur annað tækifæri til að iðrast og til að undirbúa okkur í samfélaginu við hann.
Ekki munu allir þó nota þennan tíma eins vel og þarf og mun Guð þurfa að skekja allt jafnvel enn meir en áður í von um að einhverjir bregðist við.
Sumir munu forherðast í þrjósku sinni og mun Guð leyfa því að gerast sem þeir hafa kallað yfir sig.
Meyjarnar fávísu áttu ekki olíu á auka kerum, hin gamla smurning var uppurinn, þær vísu áttu auka olíu á auka kerum, voru búnar að undirbúa sig og taka við nýju smurningunni, kærleikanum, friðnum og gleðinnar olíu mitt í því að allt er skekið.
Vinir það er enn tími, vakna þú sem sefur og rís upp frá dauðum og þá mun Kristur lýsa þér.
Sumir sem finna að gamla vínið er að vera uppurið skilja ekki alveg hvað er í gangi, en sjá samt að nýtt er að gerast en halda að þeir hafi misst af, að þetta nýja sé ekki fyrir þá en það er lygi, allir hafa aðgang en það krefst þess að við stígum út úr þessu gömlu hefðum og vana og tökum við því nýja. Sumir munu átta sig í tíma og taka stöðu sína, aðrir munu þorna upp og staðna.
Orðið sem ég fékk og talaði út á Kotmótinu var svohljóðandi: Við erum að fara inn í það að upplifa mestu vitjun frá Guði enn meiri en átt hefur sér stað áður, nýtt sem Guð er að gera og er nú þegar byrjaður á, við þurfum að undirbúa okkur til að taka við því.
Þetta er gjörólíkt því sem áður hefur verið, alveg glænýtt frá Guði, og það er erfitt fyrir suma að taka við því.
Ég sé þetta nýja koma eins og öldur, Heilags Anda öldur sem skella á landinu, fyrst kemur ein lítil alda, síðan önnur stærri og síðan enn stærri alda uns flæðir yfir allt landið og héðan til annarra landa.
Fyrsta aldan er nú þegar komin og þessu flæði fylgir vitjun engla í ríkum mæli með táknum og undrum.
Það er bæn mín að augu ykkar opnist við lesturinn.
19.11.2008 00:14
Heimahópar sem bátar
Ég sá í byrjun árs 2007 sýn á bænastund í Bænahúsinu, ég sá marga litla báta af öllum stærðum og gerðum.
Ég spurði Guð hvað þetta væri, hann sagði þetta eru heimahópar sem ég ætla að reisa upp út um allt land.
Ég hef séð þessa sýn nokkrum sinnum síðan þá í nokkrum útgáfum og með mismunandi áherslum. Það er engin spurning að Guð er að leggja áherslur á heimahópa til að taka utan um fólk, það er staðreynd að fólk kemur í heimahópa sem ekki kemur í kirkju eða á samkomur.
Eldur Guðs mun núna fara sem eldur í sinu, hús úr húsi út um allt Ísland og frá Íslandi út til annara landa
Ella í Bænahúsinu sagði að bátur væri líka (leadership), Guð er að þjálfa og reisa upp leiðtoga.
Núna er tíminn að setja af stað heimahóp og bjóða vinum og kunningjum eða einhverjum úr fjölskyldunni, Nói smíðaði örk til björgunnar sjálfum sér og heimilis fólki sínu, eins kemur blessun inn á heimili okkar og við hýsum engla án þess að vita okkur og öðrum sem koma á heimili okkar til blessunnar.
Ef þú vilt koma í heimahóp en veist ekki hvert þú getur farið þá hafðu samband við mig og ég get fundið út úr því fyrir þig arnith@simnet.is
Guð er að reisa upp sterkan ósýnilegan her í gegnum heimahópa sem mun stíga fram í einingu.
Í Postulasögunni lesum við að þeir hittust bæði í heimahúsum og í helgidóminum (kirkjunni)
Postulasagan 46-47
Daglega komu þeir saman með einum huga í helgidóminum, þeir brutu brauð í heimahúsum, neyttu fæðu saman í fögnuði og einlægni hjartans.
47Þeir lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum. En Drottinn bætti daglega við í hópinn þeim, er frelsast létu.
Postulasagan 5:42
Létu þeir eigi af að kenna dag hvern í helgidóminum og í heimahúsum og boða fagnaðarerindið um, að Jesús sé Kristur.
Postulasagan 20:20
Þér vitið, að ég dró ekkert undan, sem yður mátti að gagni verða, heldur boðaði yður það og kenndi opinberlega og í heimahúsum.
16.11.2008 20:49
Dökkt ský
Sá mig í sýn í október 2008 standa upp á múrvegg sem varðmaður, það kom dökkt stórt ský yfir sjóndeildarhringinn sem nálgaðist mjög hratt uns ég gat ekki séð neitt lengur út úr augum ofan af veggnum.
Ég hoppaði þá niður af veggnum niður á jörðina fyrir utan múrinn.
Tilfinningin sem ég hafði varðandi sýnina var sú að þetta var greinileg viðvörun um það sem var að koma. Það að ég skyldi hoppa niður af veggnum fannst mér vera að eina leiðin í stöðunni var að auðmýkja sig undir Guðs voldugu hönd.
Á þessum tímapunkti var ég að vinna fyrir mann og grunaði mig strax að hann myndi ekki borga mér fyrir vinnunna og reyndist það vera rétt þar sem ég er ekki enn búinn að fá krónu frá því að ég sá sýnina, núna í dag þegar ég rifja upp sýnina þá finnst mér einnig þetta geta átt við þetta hrun í efnahag Íslands, sem gerðist síðar.
16.11.2008 18:41
Dómur og náð
Ég var á samkomu í dag og prédikarinn var að tala út frá Hebreabréfinu 4:7
Á jarðvistardögum sínum bar hann fram með sárum kveinstöfum og táraföllum bænir og auðmjúk andvörp fyrir þann, sem megnaði að frelsa hann frá dauða, og fékk bænheyrslu vegna guðhræðslu sinnar.
Og einnig út frá sögunnni miskunnsama samverjan.
Þá kom orð Drottins til mín svohljóðandi sem ég talaði út á samkomunni:
Gefið gætur að hverjum öðrum og því fremur sem þið sjáið að dagurinn færist nær.
það er kominn dómur, það er kominn dómur, það er kominn dómur yfir heiminn,
en þeir sem leita mín og halda boðorð mín munu finna náð í mínum augum segir Drottinn Guð.
Tvö boðorð eru öllum boðorðum æðra; Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum og Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.
13.11.2008 01:13
Boðskapur
Birgir Ólsen, Svíþjóð, spádómsorð töluð út í Fíladelfíu söfnuðinum 1955
Ó Lýður minn, segir Drottinn.
Ég hef rannsakað hversdagsleika ykkar,
ég hef séð þig, þar sem þú hefur gengið veg þinn áfram.
Ég hef einnig séð hvað augu þín eru bundin við.
Ó, brúður mín segir Drottinn, sem ég hef keypt með dýrmætu blóði mínu.
Hvers vegna lætur þú heiminn táldraga þig.
Hvers vegna eru augun þín svo haldin? Ég tek eftir þeim svefni sem hefur lagst á þig.
Ó, Brúður mín, Ó, Brúður mín. Heyrir þú ekki, hvernig Andinn vill leiða þig frá þessu sem frjósömu ekrum, og gefa þér auðæfi sín.
Sjá segir Drottinn,
sá dagur kemur og er ekki fjarri, þegar neyð þrengir sér inn yfir þetta land.
hvað ætlar þú að gera við það sem þú hefur safnað saman?
Og hvar ætlar þú að fela þig fyrir refsidóminum?
Sjá segir Drottinn,
Ég verð að segja við þig Brúður mín, að einnig þessi staður, þessi borg, verður jöfnuð við jörðu.
Ó, Brúður mín, ég vil láta þig vera auðuga í Anda mínum.
Ég vil leysa þig svo þú getir bjargað sálum.
Ó, Lýður minn segir Drottinn.
Áður en þessi neyð skellur yfir vil ég í náð vitja þessa lands.
En hvar eru þeir sem vilja fara af á stað?
Hvar ert þú sem vilt gráta neyð þeirra?
Ó, þeir eru svo margir sem kvíða áhrifum illra anda.
En ég, Drottinn, vill leysa þá.
Ég vil láta söfnuð minn vera í slíkum krafti svo þeir geti þjónað mér.
Ég sé eld, segir Drottinn sem brennur í krafti svo þeir geti þjónað mér.
Ég sé eld, segir Drottinn sem brennur í krafti þar sem hann fer að brenna.
ég vil ganga fram á kröftugan hátt.
því sjá, Ég vil bjarga mörgum áður en ég kem.
Og til þess að þið skiljið, að það er ég Drottinn sem tala, þá skal ég byrja á því að frelsa bænabörnin ykkar.
Ég mun frelsa bænabörnin, segir Drottinn.
Og þið skuluð skilja það segir Drottinn, að ég vil á þessum dögum
framkvæma mitt verk.
En þegar þessi neyð skellur yfir, mun ég taka brúðarskara minn frá jörðinni.
sæll ert þú sem bíður í trúmensku og þjónustu, segir Drottinn, brúðgumi
Þinn Jesús Kristur.
23.10.2008 17:15
Bæna-, lofgjörðar og föstu átak
10 daga, samkirkjuleg bæna-, lofgjörðar- og föstu átak.
Dagana 4 til 14 nóvember verður samkirkjuleg 10 daga bæna, lofgjörðar og föstu átak fyrir landinu okkar undir yfirskriftinni "Komi þitt ríki svo á jörðu sem á himni". Það verður bæn og lofgjörð dag og nótt, þar sem tveggja tíma vaktir verða skipulagðar í einu. Þessi bæna- og lofgjörðar tími mun byrja kl. 20:00 þann 4. nóvember og enda kl. 20:00 þann 14. nóvember 2008 í húsnæði Kærleikans Faxafeni 8.
Dagana 7 til 9 nóv. verður mót og gestur mótsins er Kirk Bennett sem er stofnandi Zadok House of prayer í Charlotte í USA. Sjá dagskrá mótsins í viðhengi, en laugardaginn 8. nóvember kl. 10-12 verður sérstök kennsla fyrir leiðtoga (forstöðufólk, bænaleiðtoga og aðra leiðtoga innan safnaðanna).
Bænahúsið og Kærleikurinn hafa haft frumkvæðið af þessum atburði, en hugmyndin er að allir söfnuðir komi að þessu í einingu Andans. Nú er tími Guðs til að endurreisa alla hluti og þær þrengingar sem ganga yfir okkar þjóð munu verða til blessunar ef við lyftum upp nafni Drottins og hrópum niður áætlun Guðs fyrir Ísland. Því er haft samband við alla söfnuði til að taka þátt í föstunni og koma til bæna og lofgjörðar í húsnæði Kærleikans Faxafeni 8 dagana 4 til 14 nóv.
Kærleikskveðja,
Kolbeinn Sigurðsson
BÆNAHÚSIÐ
Heimasíða; www.vonin.ws
Auglýsing - dagskrá
12.10.2008 11:03
Erfiðir tímar
Það fer örugglega ekki fram hjá neinum þeir uggvænlegu tímar sem við erum gengin inn í sem einstaklingar og þjóð, erfiðir tímar eru núna framundan fyrir íslensku þjóðina, núna reynir heldur betur á okkur öll, á þolgæði okkar og styrk.
Í byrjun ársins 2008 talaði Drottinn til mín að á þessu ári myndu gerast hlutir sem aldrei hefðu gerst áður, þetta ár yrði eins og nýtt upphaf að mörgu sem myndi líta dagsins ljós næstu árin, ég ætla ekki að fara nánar inn í þetta núna en mun gera það ef Guð lofar síðar. Eitt af því sem ekki hefur gerst í svona miklum mæli áður sést greinilega í veðurfarinu, einnig er hægt að nefna árangur íslenska landsliðsins í kína og síðast en ekki síst fjármála erfiðleikarnir sem við stöndum frammi fyrir núna.
Þegar erfiðleikar steðja að í hinu veraldlega þá reynir meira á það hvar við stöndum í hinu andlega en nokkru sinni áður, Biblían hvetur okkur til að líta upp til Drottinns á tímum þrenginga sem koma munu yfir alla heimsbyggðina.
Í Lúkasarguðspjalli 21 kafla er að finna eftirfarandi orð:
26Menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbyggðina, því að kraftar himnanna munu bifast.
27Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð.
28En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd."
29Hann sagði þeim og líkingu: "Gætið að fíkjutrénu og öðrum trjám.
30Þegar þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af sjálfum yður, að sumarið er í nánd.
31Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs ríki er í nánd.
32Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt er komið fram.
33Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.
34Hafið gát á sjálfum yður, að hjörtu yðar þyngist ekki við svall og drykkju né áhyggjur þessa lífs og komi svo dagur sá skyndilega yfir yður
35eins og snara. En koma mun hann yfir alla menn, sem byggja gjörvalla jörð.
36Vakið því allar stundir og biðjið, svo að þér megið umflýja allt þetta, sem koma á, og standast frammi fyrir Mannssyninum."
Aðfara nótt 3 október vaknaði ég upp eftir að hafa dreymt tvo drauma sem ég skrifaði niður ásamt öðrum atriðum sem kom til mín að skrifa niður í samhengi draumana.
Það gerist ekki oft að ég vakna svona upp á nóttunni til að skrifa niður eða biðja en það hefur þó gerst nokkrum sinnum í gegnum þau ár sem eru líðin en hefur ekki verið eins oft og styttra á milli þess eins og núna síðast liðin 2 ár.
Þegar ég var að skrifa niður það sem kom til mín aðfaranótt 3. október, þá fannst mér einnig eins og ég þyrfti að fara niður á hnéin og biðja fyrir landi okkar og þjóð og það kom mjög sterkt til mín vegna erfiðleika og þrenginga sem núna steðjuðu að. Fann mikilvægi þess að biðja Guð um vernd og styrk yfir fólkið í landinu og að biðja algóðan Guð að senda út sína góðu engla til að vernda og þjóna inn í líf fólks og til að koma í gegn þeim illu öflum sem núna myndu nota tækifærið og herja á þjóðina og ekki síst á þá sem láta hugfallast og eru veikir fyrir. Djöfullinn er eins og öskrandi ljón sem gengur fram og aftur leitandi af þeim sem hann getur gleypt, ég sá eins og forðum er Ísraelsmenn voru í Egyptalandi engill dauðans banka á dyr og hversu áríðandi er núna að vera undir vernd Jesús Krists, undir blóði hans.
Ísraelsmenn settu dýra blóð á dyrnar sínar og engill dauðans fór fram hjá, eins getum við verið undir vernd blóðs Jesús Krists með því að ákalla Jesú nafn og blóð hans.
Margir hafa fallið fyrir eigin hendi undanfarin ár á Íslandi og ég fann bæna neyð fyrir því að vernd Guðs komi yfir fólkið í landinu til að slíkt gerist ekki. Ég hvet alla sem lesa þetta að vera vakandi í bæninni og að lifta upp Jesú nafni og að vera vakandi að uppörva, hvetja og hugga þá sem í kringum okkur eru og ekki síst biðja fyrir hvort öðru.
Lausnin er ekki fólgin að taka sitt eigið líf eða að reyða sig á eigin styrk heldur að leita Drottins og treysta honum af öllu hjarta, því hann mun vel fyrir sjá.
Það er trú mín og sannfæring að þrátt fyrir þá miklu erfiðleika sem eru framundan þá séum við einnig að ganga inn í mest spennandi tíma núna sem aldrei fyrr þar sem Guð mun sanna sig og sitt himneska ríki hérna á jörðu í miklum mætti og mikilli dýrð fyrir sinn heilaga anda í gegnum þá sem tilheyra honum og eru heilshugar við hann.
Drottinn vill nota mig og þig til að útbreiða orð sáttargjörðarinnar, látið sættast við Guð og menn í Jesú nafni, amen.
Að lokum vil ég benda þeim á það sem lesa þetta að skrifa hérna fyrir neðan jákvæð innlegg til þeirra sem heyja þessa glímu þeim til hjálpar, því að hvatning, huggun og kærleiksávarp megnar mikils.
Til komi þitt ríki, verði þinn vilji á jörðu sem á himni



